Leturstærð:

Gistiheimilið Reynir

Gistiheimilið Reynir er fjölskyldufyrirtæki staðsett á Reyni í Reynishverfi. Stefna okkar er að bjóða uppá snyrtilega og notalega gistingu á góðum stað. Gistiheimilið samanstendur af 4 gámherbergjum sem hvert og eitt eru eitt herbergi með útýni til sjávar. Hvert herbergi er útbúið með tveimur 90cm rúmum (það er möguleiki á að setja inn það þriðja eða barnarúm) í herbergjunum er snyrting með vaski og wc. Sumarið 2014 tókum við í notkun nýja 280fm byggingu sem samanstendur af 6 tveggja manna og 2 sex manna herbergjum. Í húsinu eru tvö salerni, þrjú sturtuherbergi, eldhús með matsal og einnig setuaðstaða. Öll herbergin koma með vaski.

Umhverfið í kring er frábært, frá staðnum er útsýni yfir Dyrhólaey, útá sjó og til jökla. Það er tilvalið fyrir fólk að fara í gönguferðir , þar sem t.d. er hægt að ganga niður í Reynisfjöru þar sem tekinn verður í notkun nýr veitingastaður sumarið 2014, eða á Reynisfjall þar sem hægt er að sjá lundann ,svo er útsýnið þaðan yfir staðina í kring frábært.

Alla þjónustu svo sem verslanir, sundlaug, golfvöll, veitingastaði og fleira er auðvitað hægt að sækja til Víkur en það er um 7 mínútna akstur þangað.

Staðsetning

Smelltu á mynd til að sjá nánar
Gistiheimilið Reynir - Reyni - 871 - Vík í Mýrdal - S:8949788 - Email: gistiheimilidreynir@gmail.com